Á laugardaginn höfðum við ætlað okkur að fara til Tarragona en þar sem Funi var uppfullur af hori og slappleika ákváðum við að fresta ferðinni fram á næstu helgi. Við fórum því út sitt í hvoru lagi. Fyrst fór Bjar
ki í bæinn í buxnaleit en svo fór ég að versla inn fyrir súpuboð sem við ætluðum að hafa á sunnudeginum. Ég var nú ekkert sérstaklega vel upplögð í það að versla í matinn..mér er nú ekkert vel við það yfir höfuð, mér finnst ég bara ekkert sérstaklega góð í því. Kaupi bara alltaf það sama og yfirleitt það sem er til nóg af heima og geng svo utan við mig í hringi í búðinni,yfirleitt að hugsa um eitthvað allt annað en innkaupin. Bjarki er hins vegar mjög góður í þessu og kaupir akkurat það sem vantar hverju sinni og meira sniðugt til. Segjum bara að ég sé góð í því að gera góð kaup á öðrum vettvangi en matarmarkaðnum.
Ég labbaði sumsé ein af stað í leiðangur. Fyrst gekk ég framjá litlu veitingahúsi og heyrði þaðan skellihlátur...innilegan frá hjartanu og ég varð strax léttari í spori. Ég hafði tekið með mér myndavélina og var í óðaönn að mynda handrið,gluggasillu eða eitthvað álíka þegar ég heyrði aftur skellihlátur frá öðru fólki í góðum félagsskap. Ég hélt för minni áfram á markaðinn en þegar ég gekk litla götu á leið minni þangað heyrði ég skellihlátur í þriðja sinn,í þetta skiptið kom hann úr einu íbúðarhúsinu. Þá hugsaði ég með mér að þetta hlyti að vera góðs viti að heyra gleðihlátur allt í kring um sig...ég var þá komin á markaðinn og nema h
vað, hópur af fólki stóð ofar í götunni og hló svona líka hátt og innilega. Fjórum sinnum..það er bara eins og fjögurra blaða smári hlýtur að vera, þvílík endemis lukka! Mér gekk líka einstaklega vel að kaupa inn, allt gekk smurt. Keypti svo sushi í matinn og þegar draumalandið kallaði á krakka, kallaði sushi og ískalt hvítvín á foreldrana..hvað er betra?
Á sunnudeginum buðum við íslensku pari og tveimur dætrum í súpu og möffins. Það gekk vel og við sátum á spjalli fram eftir degi. Þegar boðinu lauk var ég samt eitthvað svo andlaus..skildi bara ekkert í því og Bjarki var með sömu tilfinningu. Hugsaði með mér að parið hefði kanski stolið allri orkunni okkar og hefði svo komið endurnært heim..svona er ég klikk..en samt aldrei að vita.
Ég settist í sófann og ákvað að reyna að hressa mig við með því að prjóna eitthvað sem ég veit ekki enþá hvað verður. Á meðan ég sat þarna var mér hugsað til hláturmeðferða sem fólk fer í og á að losa um streitu, stress og vanlíðan af öllu tagi og endorfínið flæðir um líkamann. Ég man líka eftir að hafa séð þátt um fólk í Indlandi sem hittist á hverjum morgni og hló saman, fyrst gervihlátri
sem þróaðist svo í alvöru skellihlátur. Þar var reyndar líka verið að tala um að gervihlátur geri sama gagn og alvöru hlátur, styrki hjartað komi í veg fyrir sjúkdóma og ég veit ekki hvað og hvað. Það sakar ekki að prófa hugsaði ég.
Ég byrjaði að hlæja lágum gervihlátri..hahahaaa.
"Hmmm hvað segiru "?Heyrðist í Bjarka inni í eldhúsi..."varstu að hlæja"? Ég: (hikandi) Uuuu, já (vissi ekkert af honum)...svo gat ég ekki annað en hlegið alvöru skellihlátri.
Svei mér þá ef ég er ekki bara allt önnur!
Svei mér þá ef ég er ekki bara allt önnur!