Þegar Salka kom svo úr skólanum í gær var hún heldur betur ánægð (eins og re
Ha!..Ég neita að trúa því að dóttir mín myndi vilja skipta mér út bara si svona fyrir spænskan enskukennara...eða hvað???
apakettir í ævintýraleit
eð cava. Við heyrðum reyndar ekki alveg þegar klukkan byrjaði að slá svo það var ekki akkúrat eitt vínber á hverju slagi en við náðum að klára þau á slaginu 12..það hlýtur að teljast með og árið verður okkur heilladrjúgt?. Fólk tekur þessa hefð annars mjög alvarlega og það eru alltaf einhverjir sem nánast kafna í öllum hamaganginum. Að loknu vínberjaátinu horfðum við á alla 4 flugeldana bjóða nýja árið velkomið...ég er ekki að ýkja! Ég var búin að spyrja spænskukennarann hvort það væri venjulega mikið um flugelda á gamlárskvöld og hann hélt það nú ; ) Ég reyndi hvað ég gat að finna stjörnuljós í bakaríinu? sem ég keypti þau í um daginn en afgreiðslukonan vildi ekkert kannast við það. Ég fór á nokkra staði í viðbót en enginn seldi stjörnuljós. Þetta voru því flugelda og stjörnuljósalaus áramót en þeim mun meira af vínberjum og cava !
gestrisni Roche hjónanna. Salka fékk að koma með í partý en sofnaði fljótlega og Funi svaf vært í sínu rúmi enda engir flugeldar til að raska ró þeirra. Michael er mikill áhugamaður um vín og þá sérstaklega eftirréttavín og leyfði okkur að smakka hinar ýmsu tegundir og auk þeirra virtist hann eiga allar tegundir af vínum..."hvað drekkur þú venjulega"? "Jamm ,gin og tonik minnsta mál...og þú, já hvítvín". Svo kynnti hann hvers kyns hvítvín þetta væri nú og passaði alltaf að allir væru með nóg í glösunum...hann er einmitt íri ef við ætlum að fara út í staðalímyndir ; ) Við spjölluðum frameftir um hitt og þetta og fólkið var til dæmis mjög hissa á skólanum hennar Sölku og fannst skóladagurinn skelfilega langur (6 klst.) "Af hverju valVið létum okkur ekki vanta við höfnina og sáum konungana koma siglandi við mikla viðhöfn. Við röltum svo aðeins um bæinn og stilltum okkur síðan upp ásamt fjölda fólks til að bíða eftir að skrúðgangan liðaðist framhjá...þvílík sýning!!! Allskyns fígúrur, glimmer, bumbusláttur, hestar, álfar, arabar og alvöru kameldýr voru meðal þess sem fyrir augu bar! Það rigndi nammi og þeir sem stóðu fremstir voru sumir hverir með regnhlífar og poka til að safna í en aðrir eins og við létu sér nægja að grípa eitt og eitt eða tína upp úr götunni ; ) Sumir höfðu komið með stiga að heiman til að sjá sem best og mörg börn voru með bréf til konunganna sem innihéldu óskir þeirra...það voru hundruðir "konunglegra" póstburðarmanna sem tóku á móti bréfunum með loforði um að koma þeim í réttar hendur.